ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Vill breyta nafninu sínu í Metta World Peace

Ron Artest hefur sótt um nafnabreytingu
Birgir Olgeirsson birgir@dv.is
19:09 › 24. júní 2011
Ron Artest í leik með Los Angeles Lakers.

Ron Artest í leik með Los Angeles Lakers. Mynd Reuters

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Ron Artest vill breyta nafninu sínu í Metta World Peace. Artest leikur með Los Angeles Lakers í NBA-deildinni en lögfræðingur hans sótti um nafnabreytinguna fyrir leikmanninum sem heitir Ronald William Artest Jr.

Artest ber fyrir sig persónulegum ástæðum fyrir að vilja breyta nafninu sínu í Metta World Peace. Málið verður tekið fyrir 26. ágúst.
Ferill Artest sem körfuknattleiksmaður hefur verið afar skrautlegur. Hann átti stóran þátt í NBA-meistaratitli Lakers fyrir ári og í apríl fékk hann verðlaun fyrir framúrskarandi þjónustu við samfélagið sitt.

Hann hefur farið fyrir þjóðþing Bandaríkjanna til þess að ræða löggjöf er varðar einstaklinga eiga við andlega sjúkdóma að stríða.
Artest er þó einna þekktastur fyrir að hafa verið valdur af einum af stærstu slagsmálum í sögu NBA-deildarinnar þegar hann fór upp í áhorfendastúku og réðst á aðdáanda þegar hann lék með Indiana Pacers árið 2004. Hann var settur í leikbann út tímabilið fyrir þá uppákomu sem átti sér stað í nóvember það ár.

Artest er ekki fyrst NBA-leikmaðurinn sem sækir um óvenjulega nafnbreytingu.

Lloyd Bernard Free, sem lék í deildinni á árunum 1975 til 1988, lét breyta fyrra nafni sínu í World árið 1981. Í NFL-deildinni var leikmaður að nafni Chad Johnsons sem breytti seinna nafni sínu í Ochocinco í ágúst árið 2008. Ochocinco þýðir „átta fimm“ á spænsku.

„Það setti á mig bros,“ sagði framkvæmdastjóri Lakers Mitch Kupchak þegar hann tjáði sig um fyrirhugaða nafnabreytingu Artest. „Það hefur verið gert áður, ég hef ekkert annað um það að segja,“ sagði Kupchak.

Framkvæmdastjórinn var spurður hvort að fullt nafn Artest yrði á búningi hans á næstu leiktíð. „Ég er talsmaður heimsfriðar,“ sagði Kupchak um hugsanlega breytingu á búningi Artest sem gæti heitið Metta World Peace innan tíðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?