ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Gunnar Nelson fékk ígerð í fótinn

Undirbýr sig fyrir eitt stærsta glímumót Evrópu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:44 › 22. júní 2011
Gunnar Nelson er á leiðinni til New-York.

Gunnar Nelson er á leiðinni til New-York.

Gunnar Nelson er á leiðinni í strangar æfingabúðir í New-York á vegum Renzo Gracie. Þar mun taka við undirbúningur fyrir ADCC glímumótið sem haldið verður í Nottinghamskíri á Bretlandi í september en það er eitt stærsta glímumót í heimi.

Að sögn Haralds Dean Nelson, umboðsmanns Gunnars, er Gunnar í topp formi og vonir eru um gott gengi Gunnars á mótinu. Aðspurður hvort að glíma sé sterkari hlið Gunnars segir Haraldur að svo sé. „Hann er mjög sterkur á báðum hliðum, en hans sterkasta svið er gólfglíman.“ Gunnar er enn ósigraður í MMA bardögum.

Að sögn Haralds reyndu sex Íslendingar að fá þáttökurétt á mótinu í undankeppnum, en um 16 manns keppa í hverjum þyngdarflokki. „Það reyndu sex Íslendingar að komast inn en Gunnar var sá eini sem boðin var þátttaka,“ segir Haraldur. Gunnar tók þátt í mótinu árið 2009 og komst þá í undanúrslit.

Fyrir um þremur vikum síðan fékk Gunnar ígerð í fótinn og var það af völdum Staphylococcus bakteríu sem er nokkuð algeng. En Haraldur segir sýkinguna ekki hafa verið alvarlega. „Gunnar fékk sýklalyf og tók það í viku og þá var þetta farið. Þetta var ekki alvarlegt sem betur fer.“

Bakterían hefur borist í sár sem Gunnar hefur verið með og getur hún borist auðveldlega á ýmsan máta, til dæmis með svita. „Við létum taka sýni niðri í Mjölni,“ segir Haraldur um sýkinguna, en segir bakteríuna ekki hafa komið þaðan. Þá segir hann dýnurnar í Mjölni reglulega sótthreinsaðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?