ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Mjölnir gætir fyllstu varúðar ef grunur leikur á um sýkingar

Dýnur hreinsaðar reglulega með sótthreinsandi efni
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:13 › 22. júní 2011
Frá æfingum í Mjölni.

Frá æfingum í Mjölni.

„Staðreyndin er sú að þeir sem eru að stunda þessar íþróttir þar sem er mikil líkamleg snerting, þeir taka þessa áhættu að ef einhver æfingafélaga þeirra er kominn með svona sýkingu og gerir sér ekki grein fyrir því, þá getur hann átt það á hættu að smitast af einhverju. Þetta höfum við allir reynt á sjálfum okkur, allir sem stöndum að félaginu,“ segir Árni Þór Jónsson, varaformaður Mjölnis, um sýkingahættu sem felst í því að stunda íþróttir þar sem er líkamleg snerting.

Greint var frá því í dag að bardagakappinn Gunnar Nelson hefði fengið ígerð í fót sökum bakteríunnar Staphylococcus fyrir þremur vikum. Umboðsmaður Gunnars, Harald Dean Nelson, sagði að sýkinguna ekki hafa verið alvarlega og fékk Gunnar sýklalyf sem hann tók í viku og losnaði þar með við ígerðina.

Eftir að fréttin birtist á DV.is barst ábending um að fleiri einstaklingar hefðu fengið slíka sýkingu eftir að hafa æft hjá Mjölni en Árni Þór segir það vera stórkostlegar ýkjur. Hann segir að ef einhver væri með slíka sýkingu þá myndu þeir vita af því. „Um leið og það liggur grunur á að iðkandi sé með eitthvað þá er hann látinn draga sig í hlé. Það eru mjög strangar reglur hjá okkur,“ segir Árni í samtali við DV.is.

Sýkingar vegna Staphylococcus-bakteríunnar eru mjög algengar en bakterían lifir að staðaldri á húð og einkum í nefi um það bil 20-40% manna, án þess að valda nokkrum einkennum eða skaða. Komist hún hins vegar í sár, blóðbraut eða aðra vefi getur hún valdið misalvarlegum sýkingum, svo sem húðsýkingum eða skurðsárasýkingum, að því er fram kemur á Vísindavef Háskóla Íslands.
Árni segir að mikið sé lagt upp úr hreinlæti hjá Mjölni og að dýnurnar þar sé hreinsaðar reglulega með sótthreinsandi efni. „Það er aldrei hægt að segja að salurinn sjálfur sé sá sem smitar. Í raun og veru er þetta ef einhver veit ekki af því að hann sé ekki með eitthvað og að þú ert í samskiptum við hann. Mjög fljótt komast menn að því og menn fatta það strax og þá eru menn rosalega fljótir að draga sig í hlé,“ segir Árni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?