ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Frábær árangur íslenska landsliðsins á Smáþjóðaleikunum

Hafa unnið til flestra verðlaunapeninga
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
11:47 › 2. júní 2011
Frábær árangur íslands á Smáþjóðaleikunum

Frábær árangur íslands á Smáþjóðaleikunum DV

  • Smáþjóðaleikarnir

    SmáþjóðaleikarnirDV

Íslenska landsliðið hefur staðið sig frábærlega á Smáþjóðaleikunum í Lichtenstein. Ísland hefur unnið til flestra samanlagðra verðlauna á leikunum. Íslenska liðið hefur fengið alls 33. verðlaunapeninga og þar af eru 9 gull, 11 silfur og 14 bronspeningar.

Einn bestur árangur liðsins hefur verið í sundi. Í gær settu Hrafnhildur Lúthersdóttir og Jakob Jóhann Sveinsson mótsmet í sundi. Hrafnhildur synti 100 metra bringusund á 1:10,92 mínútu og bætti þar með sitt gamla mótsmet.
Jakob Jóhann bætti sig einnig í 100 metra bringusundi og sitt eigið mótsmet en hann synti á 1:02,60 mínútu.

Eygló Ósk Gústafsdóttir hefur unnið til tveggja gullverðlauna og íslensk boðsundsveit sigraði í 4x 200 metra skriðsundi.

Þá vann Ásgeir Sigurgeirsson til gullverðlauna í keppni með loftskammbyssu og hefur íslenska skotíþróttafólkið unnið til þriggja verðlauna.

Í frjálsum varð Örn Davíðsson í 2. sæti í spjótkasti og í frjálsum hafa einnig unnist tvenn bronsverðlaun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?