Bryndísi Sighvatsdóttur virðist svo sannarlega golfið vera í blóð borið. Á fyrsta golfmótinu sem hún tók þátt í sló hún holu í höggi á 18 holu velli.
En þetta var ekki bara fyrsta mótið hennar, heldur er þetta í fyrsta sinn sem hún spilar á 18 holu velli. „Ég hef spilað litla velli svona af og til, kannski þrisvar á ári í svona tvö ár,“ segir Bryndís í samtali við DV.is.
Bryndís tók þátt í Háskólamóti á vellinum í Hveragerði á þriðjudaginn seinasta en hún sló holu í höggi á á fyrsta teig eftir að hafa byrjað á níundu braut. „Ég skráði mig í golfklúbbinn Teig á sunnudaginn og sótti svo skírteinið klukkutíma fyrir mótið,“ segir Bryndís. Eftir afrekið tók hún sig svo til og sigraði mótið.
Aðspurð hvort að hér sé á ferð ótrúleg heppni eða einfaldlega náttúruleg náðargáfa segir hún að það hljóti að vera sitt lítið af hvoru. „Ég veit það nú ekki. Hola í höggi er alltaf heppni, en ég er svona ágæt í mörgum íþróttum. Ætli þetta sé ekki sitt lítið af hvoru,“ segir Bryndís. „En mamma segir að ég hafi alltaf verið svona.“
En hvert er leyndarmálið hennar Bryndísar? „Ég miðaði á flaggið,“ segir Bryndís, glöð í bragði.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
