Rosalegir saman. Þeir voru engir sérstakir vinir en Shaq og Kobe kunnu að vinna NBA titla saman. Mynd: Reuters
Körfuknattleikströllið Shaquille O'Neal tilkynnti það í dag að nú væri lokið tæplega tuttugu ára glæstum ferli hans í NBA-deildinni.
O'Neal kom inn í NBA-deildina árið 1992 þegar hann var valinn allra nýliða fyrstur af Orlando Magic. Ekki síðan Michael Jordan kom inn í deildina hafði jafn mikið verið látið með nýliða og O'Neal. Hann stimplaði sig inn sem einn besti miðherji NBA á tíma sínum hjá Orlando. En eftir að hann skipti yfir til LA Lakers árið 1996 hóf hann að stimpla sig inn sem einn besti miðherjinn í sögu NBA.
Hann vann þar þrjá meistaratitli í röð ásamt Kobe Bryant undir stjórn Phil Jackson. Hann söðlaði síðan um árið 2004, gekk til liðs við Miami Heat þar sem hann, í félagi við Dwyane Wade, nældi sér í sinn fjórða meistaratitil. Frá árinu 2008 hefur hann leikið með Phoenix Suns, Cleveland Cavaliers og nú síðast Boston Celtics en meiðsl settu strik í reikninginn á síðari árum hjá þessum reynslumikla höfðingja. Nú, 39 ára að aldri, hefur hann ákveðið að segja þetta gott.
Rifjaðu upp magnaðan feril Shaquille O'Neal í myndbandinu hér fyrir neðan:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
