Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir náðu góðum árangri á heimsmeistaramóti IDSF í 10 dönsum. Mynd Lind Einarsdóttir
Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir voru fulltrúar Íslands á heimsmeistaramóti IDSF í flokki Unglinga II í 10 dönsum sem fram fór í Barcelona á Spáni 22. apríl síðastliðinn. Birkir og Perla höfnuðu í 16. sæti á mótinu en alls voru 35. pör frá jafn mörgum löndum sem hófu keppni. Aðeins eitt par frá hverju landi fær þátttökurétt á heimsmeistaramótinu.
Meðal dómara á mótinu var Adam Reeve, fyrrverandi heimsmeistari í flokki atvinnumanna í 10 dönsum, en hann var fulltrúi Íslands.
Sigurvegarar á mótinu voru Sergey Rozhkov og Marina Zakharova frá Rússlandi, í öðru sæti voru Paraschiv Mihai og Illes Diandra frá Rúmeníu og í þriðja sæti voru Mateusz Brzozowski og Justyna Mozdzonek frá Póllandi.
Heildarúrslit úr mótinu er hægt að nálgast hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
