ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Vettel vann í Mónakó eftir viðburðaríka keppni

Endurræst þegar sex hringir voru eftir
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:13 › 29. maí 2011
Vettel á ferðinni í Mónakó í dag.

Vettel á ferðinni í Mónakó í dag. Mynd Reuters

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull vann Mónakó-kappaksturinn í Formúlu 1 en hann hefur nú unnið fimm af fyrstu sex mótum ársins. Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari var annar og Jenson Button á McLaren þriðj.

Keppnin var heldur betur viðburðarrík því þegar sex hringir voru eftir varð óhapp í brautinni sem leiddi til þess að Vitaly Petrov á Renault klessti á vegg. Öryggisbíllinn kom út en Petrov kvartaði yfir verk í löppinni og voru því engar áhættur teknar.

Rauða flaggið kom út og keppnin því stöðvuð. Vanalega er reglan sú að sé búið 75 prósent af keppninni sé ekki endurræst en sú varð ekki raunin í Mónakó í dag. Aðeins sex hringir voru eftir þegar keppnin var stöðvuð en bílarnir voru sendir aftur að stað.

Það hjálpaði Sebastian Vettel mikið sem var fyrstur en hafði mikið fyrir því að halda forystunni þar sem dekkin voru að verða búin. Þar sem allir fengu ný dekk átti ekki möguleika í Vettel sem stakk alla af á síðustu sex hringjunum og kom fyrstur í mark.

Þar sem Lewis Hamilton náði aðeins sjötta sætinu jók Vettel forskot sitt til muna á toppnum. Er hann með 143 stig en Hamilton 85. Næstir koma Mark Webber á Red Bull með 79 og svo Jenson Button á McLaren með 76.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?