ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Ætla að neyða konur til að spila badminton í pilsum

„Mér finnst þetta fáránlegt“
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
15:20 › 29. maí 2011
Ragna veltir því upp af hverju skikka eigi stelpur til að spila í pilsum ef þeim finnst þægilegra að vera í stuttbuxum.

Ragna veltir því upp af hverju skikka eigi stelpur til að spila í pilsum ef þeim finnst þægilegra að vera í stuttbuxum. Mynd DV / Ásgeir M. Einarsson

„Mér finnst þetta fáránlegt,“ segir Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona um reglur sem Alþjóða badmintonsambandið hugðist láta taka gildi 1. júní næstkomandi. Samkvæmt reglunum átti að banna konum að vera í stuttbuxum og skikka þær til að klæðast pilsum á badmintonvellinum. Stjórn alþjóða badmintonsambandsins hefur samþykkt að fresta gildistöku reglnanna í annað sinn.

„Sumar stelpur hér á landi vilja vera í stuttbuxum af því að þeim finnst það þægilegra, þannig að af hverju að láta þær vera í pilsum ef þær vilja það ekki?“ Þessu veltir Ragna upp í samtali við AP-fréttastofuna sem fjallað hefur um málið. Margir leikmenn hafa lýst yfir andstöðu sinni við reglurnar.

Reglurnar áttu eins og áður segir að taka gildi um næstu mánaðarmót en áður hefur gildistöku reglnanna verið frestað. Enn frekari frestun á gildistöku reglnanna var svo samþykkt á fundi stjórnar sambandsins í gær sem haldinn var samhliða stórmóti sem fram fór í Kína um helgina. Ragna er stödd á mótinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?