Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Eftir ótrúlegan lokasprett í fjórða leikhluta náðu Lebron James og félagar í Miami Heat að vinna upp forystu Chicago Bulls í fimmta leik liðanna í úrslitum vesturstrandarinnar.
Bulls voru tólf stigum yfir þegar 3 mínútur og 14 sekúndur voru eftir af leiknum. Lebron James tók leikinn í sínar hendur og leiddi sína menn til 83-80 sigurs.
James skoraði 28 stig í leiknum fyrir Miami, Chris Bosh 20 og Dwyane Wade 21 og skoruðu þessir þrír því öll nema 14 stig liðsins í leiknum.
Miami-menn mæta því Dirk Nowitzki og félögum í Dallas Mavericks í úrslitunum. Sömu lið mættust einmitt árið 2006 þegar Miami vann sinn fyrsta NBA-meistaratitil í sögu félagsins.
Sjáðu brot af því besta úr leiknum hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
