Best in the West. Dirk Nowitzki og félagar í Dallas unnu vesturdeildina og eru á leið í úrslitin. Mynd: Reuters
Dallas Mavericks er komið í úrslit NBA-deildarinnar eftir 100-96 sigur á Oklahoma City Thunder í nótt. Dirk Nowitzki og Shawn Marion skoruðu 26 stig hvor fyrir Dallas í leiknum og fóru fyrir liðinu er það komst í annað skipti í úrslit NBA í sögu félagsins.
Dallas liðið er gríðarlega sterkt þessa dagana og nú á bara eftir að ráðast hvaða lið úr austurdeildinni mætir þeim í úrslitunum. Miami Heat-menn eru líklegir enda með 3-1 forystu í einvíginu gegn Chicago Bulls.
Ungt og efnilegt lið Oklahoma City Thunder kemur hins vegar reynslunni ríkara til leiks á næstu leiktíð eftir frábæra frammistöðu á tímabilinu og úrslitakeppninni. Liðið átti hreinlega aldrei séns í Dallas í seríunni.
Dallas komst síðast í úrslitin árið 2006 en tapaði þá fyrir Miami Heat með Dwyane Wade og Shaquille O'Neal fararbroddi. Dirk Nowitzki og Jason Terry eru einu leikmennirnir sem eftir eru í Dallas frá þeim tíma og vilja eflaust hefna ófaranna fyrir 5 árum.
Tilþrifin úr leiknum á vef NBA.com.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
