Miami Heat vann þriðja leikinn gegn Chicago Bulls í úrslitum austurdeildarinnar í NBA í nótt. Chris Bosh var í miklu stuði í leiknum og skoraði 34 stig í 96-85 sigri Heat sem hefur þar með tekið 2-1 forystu í einvígi liðanna.
Lebron James skoraði 22 stig, gaf 10 stoðsendingar og tók 6 fráköst. Þriðja stórstjarnan Dwyane Wade var heldur rólegri og setti 17 stig og tók 9 fráköst.
Carlos Boozer hélt Bulls inni í leiknum og skoraði 26 stig, Derrick Rose bætti við 20 en Heat náði undirtökum í leiknum í fjórða leikhluta og náði að lokum að knýja fram 11 stiga sigur. Bulls-menn þurfa því að girða sig í brók fyrir fjórða leikinn ætli þeir sér ekki að missa Heat of langt fram úr sér.
Tilþrifin úr leiknum í nótt á vef NBA.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
