ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Vettel fjótastur á Spáni

Fjórði sigur heimsmeistarans í fyrstu fimm keppnunum
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:42 › 22. maí 2011
Vettel er langefstur í stigamótinu.

Vettel er langefstur í stigamótinu. Mynd Reuters

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull kom fyrstur í mark í Spánarkappakstrinum í Formúlu 1 sem lauk í Barcelona í dag. Þetta er fjórði sigur Vettels í fyrstu fimm keppnum ársins.

Vettel átti í harðri baráttu við Lewis Hamilton á McLaren en á endanum hafði heimsmeistarinn betur eins og svo oft áður á þessu keppnistímabili.

Jenson Button á McLaren náði þriðja sætinu og Mark Webber á Red Bull, sem hóf kappaksturinn á ráspól, þurfti að sætta sig við fjórða sætið. Ferrari-maðurinn Fernando Alonso endaði fimmti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?