Oklahoma City Thunder unnu mikilvægan sigur í öðrum leik liðsins í úrslitarimmu Vesturdeildarinnar í NBA gegn Dallas. Mavericks unnu fyrsta leikinn eftir frábæra frammistöðu Dirk Nowitzki en liðin mættust aftur í Dallas í nótt í hörkuleik.
Jafnt var á með liðunum allan leikinn. Dallas byrjaði betur og var með forystu í fyrsta leikhlutanum. Síðustu þrjá leikhlutana skiptust liðin á forystunni en Thunder náði að lokum að knýja fram mikilvægan útivallarsigur.
Kevin Durant átti góðan leik fyrir Thunder og var stigahæstur með 24 stig. James Harden kom af bekknum og skoraði 23 stig og Russell Westbrook setti 18.
Hjá Dallas var Dirk Nowitzki að venju stigahæstur með 29 stig. Tyson Chandler skoraði 15 og tók 13 fráköst og Jason Kidd skoraði 13, gaf 7 stoðsendingar og tók 5 fráköst.
Tilþrifin úr leiknum má sjá hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
