Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Stjörnum prýtt lið Miami Heat jafnaði metin gegn Chicago Bulls í úrslitarimmu austurdeildarinnar í NBA-körfuboltanum.
Lebron James fór fyrir liði Miami, skoraði 29 stig, tók 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Dwyane Wade skoraði 24 stig og tók 9 fráköst.
Hjá Chicago Bulls var Derrick Rose að vanda stigahæstur með 21 stig en leikurinn í nótt einkenndist af sterkum varnarleik beggja liða eins og sjá mátti á lokatölum. Miami vann góðan 85-75 sigur á heimavelli Bulls en þriðji leikur liðanna fer fram á heimavelli Heat.
Sjáðu tilþrifin úr leiknum hér fyrir neðan:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
