Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var í banastuði þegar Dallas Mavericks mætti Oklahoma City Thunder í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. Nowitzki skoraði 48 stig, þar af skoraði hann úr öllum sínum 24 vítaskotum í leiknum.
Jason Terry kom af bekknum hjá Dallas og skoraði 24 stig og Jose Barea skoraði 21 stig. Gamli refurinn Jason Kidd gaf ellefu stoðsendingar í leiknum og er ljóst að Dallas er til alls líklegt í NBA úrslitakeppninni í ár eftir að hafa unnið meistarana í Los Angeles Lakers auðveldlega á leið sinni í úrslit vesturdeildarinnar.
40 stig frá Kevin Durant og 20 frá Russell Westbrook voru ekki nóg fyrir ungt og efnilegt lið Oklahoma City Thunder í nótt og 121-112 sigur Dallas staðreynd.
Hægt er að sjá helstu tilþrifin úr leiknum hér á vef NBA.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
