ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Chicago burstaði Miami

Unnu fyrsta leikinn í úrslitarimmunni í Austurströndinni.
09:49 › 16. maí 2011
Chicago Bulls-menn eru til alls líklegir í NBA-úrslitunum þetta árið.

Chicago Bulls-menn eru til alls líklegir í NBA-úrslitunum þetta árið. Mynd: Reuters

  • Chris Bosh lék vel og skoraði 30 stig.

    Chris Bosh lék vel og skoraði 30 stig.Mynd: Reuters

  • Derrick Rose er óstöðvandi þegar hann keyrir að körfunni.

    Derrick Rose er óstöðvandi þegar hann keyrir að körfunni.Mynd: Reuters

Chicago Bulls vann öruggan 103-82 sigur á stjörnuliði Miami Heat í fyrsta leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA-úrslitakeppninni í nótt.

Besti leikmaður deildarinnar Derrick Rose skoraði 28 stig í leiknum og var stigahæstur Chicago-manna. Luol Deng skoraði 21 stig, hitti meðal annars úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum, en Carlos Boozer setti 14 stig.

Hjá Heat var Chris Bosh atkvæðamestur með 30 stig og 9 fráköst. Dwyane Wade og Lebron James áttu frekar rólegan dag en þeir félagar skoruðu 18 og 15 stig.

Sjáðu helstu tilþrifin í leiknum með því að smella hlekkinn hér fyrir neðan:

Bulls 103-82 Miami Heat.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?