KR og Keflavík mætast í kvöld í oddaleik um sæti í úrslitarimmu Iceland Express-deildarinnar þar sem Stjarnan bíður mótherjanna. Serían til þessa hefur verið hreint mögnuð en KR komst í 2-0 áður en Keflavík jafnaði með tveimur sigrum í röð, báðum í framlengdum leikjum. DV fékk þrjá mikla körfubolta spekinga, Benedikt Guðmundsson, þjálfara 1. deildar meistara Þórs frá Þorlákshöfn, Friðrik Ragnarsson, þjálfara Njarðvíkur og Jón Björn Ólafsson, ritstjóra karfan.is, til þess að spá í spilin fyrir leikinn í kvöld.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn.
„Fyrirfram bjóst ég við spennandi seríu en þegar KR komst í 2–0 hélt ég að þetta væri búið. Þetta á samt ekki að koma manni neitt á óvart því Keflavík hefur sýnt mikinn styrk. Það eru aðeins örfá lið sem hafa náð að jafna í 2–2 og bara Keflavík sem hefur unnið eftir að lenda 2–0 undir. Svæðisvörn Keflavíkur í síðustu tveimur leikjum hefur ekki verið að halda KR sóknarlega en Keflavík er þó að fá fleiri fráköst og keyra upp völlinn og ná í þessi auðveldu stig sem það þarf. Þessi vörn hefur hentað vel á móti KR. Ég spáði KR samt sigri í seríunni og held mig við það. Sigrarnir hjá Keflavík voru þannig að þeir hefðu getað dottið inn hjá báðum liðum. Það er ekkert langt á milli þessara liða. Ég held að KR muni springa út gegn svæðisvörn Keflavíkur á fimmtudaginn og klára þetta.“
KR áfram
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur.
„Þessi rimma er einfaldlega í lausu lofti núna. Tveir síðustu leikir hafa verið algjörlega frábærir. Ég hélt að þetta væri alveg borðliggjandi sópun hjá KR eftir að það komst í 2–0. En Keflavík hefur sýnt ótrúlega þrautseigju í að koma til baka og ég fór að trúa því eftir fjórða leikinn að Keflavík myndi hafa þetta, eins og ótrúlega og það hljómaði nú fyrir nokkrum dögum. Keflavíkurliðið hefur verið skynsamt að breyta í 2/3 svæðisvörn. Það er snjallt. Þó svo KR-ingar setji niður nokkrar körfur hverfa Keflvíkingar ekkert frá skipulaginu. Þeir treysta bara á að Keflavík hitti ekki vel. Það er líka málið. Ef KR ætlar ekki að hitta á fimmtudaginn þá tapar það. Ég var á því í byrjun úrslitakeppninnar að KR yrði fyrsta liðið til að fara í gegnum hana alla án þess að tapa leik. En nú er komið eitthvað bakslag. Keflavík hefur nú unnið tvo í röð, stígandinn er með þeim og leikmenn liðsins hafa sýnt hversu ótrúlega sterkir þeir eru í hausnum. Ég ætla því að leyfa þeim að njóta vafans og spá Keflavík í úrslitin.“
KEFLAVÍK áfram
Jón Björn Ólafsson, ritstjóri karfan.is.
„Ef þú mætir ekki á þennan leik og ert stuðningsmaður Keflavíkur eða KR er eins gott að þú sért búsettur erlendis eða pikkfastur í geimrannsóknastöðinni! Það er algjör gósentíð í gangi hjá þessum tveimur félögum. KR hnyklaði vöðvana í leikjum eitt og tvö en Keflavík svaraði því. Verði Hjörvari Hafliðasyni að góðu að setja stuðul á oddaleikinn. KR mun halda áfram að keyra í bakið á Keflavík enda vopnaðir Marcus „The Bullet“ Walker. Hver myndi ekki hlaupa með hann innanborðs? Keflavík glottir hins vegar við tönn þegar KR fellur í þá gryfju að gera þetta að þriggja stiga keppni, þú nefnilega ybbar ekki gogg við Magga Gunn fyrir utan línuna. Liðin hafa sýnt að þau bæði verðskulda að vera komin í oddaleik, sama hvernig horft er á málið. Enginn er spámaður í eigin föðurlandi svo mér dettur ekki til hugar að snerta þennan leik úr fánastangarfjarlægð. Ég er samt viss um að við fáum jafnan og spennandi leik og er þá vægt til orða tekið.“
Engin spá



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
