ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Sögusagnir um Hamilton rangar: Ekki á förum frá McLaren

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:15 › 6. apríl 2011
Lewis Hamilton fer hvergi.

Lewis Hamilton fer hvergi. Mynd Reuters

Slúðurdálkar Formúlukálfanna fóru á fullt í byrjun vikunnar þegar greint var frá að Lewis Hamilton myndi yfirgefa McLaren fyrir Red Bull árið 2012.

Við nánari athugun kom í ljós að ekkert var til í því. „Ef Hamilton vildi aka fyrir Red Bull væri ekki hægt að sleppa þannig tækfæri. En mér skilst að hann sé með margra ára samning hjá McLaren sem skilar honum milljónum punda í tekjur. Ég býst því fastlega við að hann sé ekki að fara neitt,“ sagði Christian Horner, liðstjóri Red Bull, við breska ríkissjónvarpið.

Hamilton hefur ekið fyrir McLaren frá því árinu 2007 en hann hampaði heimsmeistaratitlinum árið 2008 eftir ótrúlegan lokadag. Hann var þá yngsti maðurinn til að vinna heimsmeistaratitilinn, met sem bætt var á síðasta tímabili er Sebastian Vettel, varð heimsmeistari á Red Bull.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?