Randolph og félagar fagna ótrúlegum árangri sínum. Þeir slógu út besta lið Vesturstrandarinnar San Antonio Spurs í nótt. Mynd: Reuters
Zach Randolph skoraði 31 stig og tók 11 fráköst í sjötta leik Memphis Grizzlies og San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA í nótt. Memphis kom inn í úrslitakeppnina í 8. og síðasta sæti Vesturdeildarinnar en San Antonio var með einn besta árangur allra liða í NBA-deildinni á leiktíðinni og skipaði því 1. sæti í villta Vestrinu.
Memphis gerði sér lítið fyrir og sló út stórlið San Antonio með því að vinna leikinn í nótt og seríuna 4-2. Randolph var óstöðvandi í fjórða leikhluta í nótt og skoraði 16 af 31 stigi sínu í þeim leikhluta. Memphis með frábæran 99-91 sigur.
Tony Parker var stigahæstur hjá Spurs með 23 stig, Manu Ginobili skoraði 16 en Tim Duncan aðeins 12.
Þetta var fyrsti sigur Memphis í úrslitakeppnisrimmu frá upphafi en San Antonio Spurs ollu miklum vonbrigðum í seríunni.
Memphis mætir Oklahoma City Thunder í næstu umferð sem hefst á sunnudaginn. Dallas mætir meisturum Los Angeles Lakers í hinni rimmunni í Vesturdeildinni.
Á Austurströndinni mæta Atlanta Hawks spútnikliði Chicago Bulls á meðan stjörnum prýdd lið Boston Celtics og Miami Heat eigast við.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
