ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Rose skaut Bulls áfram

07:50 › 27. apríl 2011
Derrick Rose er búinn að vera einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í vetur. Leiddi Bulls til sigurs í einvíginu gegn Indiana Pacers í Austurdeildinni.

Derrick Rose er búinn að vera einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í vetur. Leiddi Bulls til sigurs í einvíginu gegn Indiana Pacers í Austurdeildinni. Mynd: Reuters

  • Kobe Bryant er betri en flestir á aðeins öðrum fæti. Lét sig hafa það að troða í gríð og erg í nótt þrátt fyrir meiðsli.

    Kobe Bryant er betri en flestir á aðeins öðrum fæti. Lét sig hafa það að troða í gríð og erg í nótt þrátt fyrir meiðsli.Mynd: Reuters

Chicago Bulls eru komnir í aðra umferð úrslitakeppni NBA eftir auðveldan 116-89 sigur gegn Indiana Pacers í nótt. Orlando Magic tryggði sér sjötta leikinn gegn Atlanta Hawks og Kobe Bryant tryggði meisturum Los Angeles Lakers sigurinn og forystuna í einvíginu gegn New Orleans Hornets.

Derrick Rose, sem leikið hefur frábærlega í vetur og í einvíginu gegn Pacers, skoraði 25 stig og gaf 6 stoðsendingar í leiknum í nótt þegar Bulls kláraði rimmuna 4-1. Hjá Pacers var Danny Granger stigahæstur með 20 stig.

Jason Richardson var í stuði fyrir Orlando Magic gegn Atlanta Hawks og skoraði 17 stig í 101-76 sigri liðsins í nótt. Dwight Howard náði sér ekki á strik, skoraði aðeins 8 stig og tók 8 fráköst. Hawks er með 3-2 forystu í einvíginu en Hawks verður að vinna næsta leik til að halda áfram í keppninni. Josh Smith skoraði 22 stig fyrir Hawks í nótt.

Þrátt fyrir að glíma við tognaðan ökkla leiddi Kobe Bryant Los Angeles Lakers í 106-90 sigri gegn Hornets í nótt. Bryant skoraði 19 stig. Andrew Bynum skoraði 18 stig og tók 10 fráköst fyrir meistarana sem náðu 3-2 forystu í einvíginu. Hornets, sem staðið hafa í Lakers í einvíginu, náðu sér ekki á strik þrátt fyrir að stjörnuleikmaðurinn Chris Paul hafi skorað 20 stig og gefið 12 stoðsendingar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?