ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Ísland á sigurbraut - unnu Pólverja

Handboltastelpurnar unnu annan leikinn í röð
Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
20:14 › 21. apríl 2011
Stúlkurnar mæta Pólverjum aftur á morgun.

Stúlkurnar mæta Pólverjum aftur á morgun.

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann í dag góðan sigur á sterku liði Póllands, 24-22. Ísland leiddi með einu marki í hálfleik en þetta er í fyrsta sinn sem íslensku stelpurnar leggja þær pólsku.

Á heimasíðu Handknattleikssambands Íslands er haft eftir Einari Jónssyni, nýjum landsliðsþjálfara, að liðið hafi leikið frábæra 6-0 vörn þar sem Arna Sif Pálsdóttir og Stella Sigurðardóttir hafi stýrt vörninni. Þá hafi markverðirnir varið mjög vel.

"Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Rut Jónsdóttir fóru svo fyrir sóknarleiknum og áttu báðar mjög góðan leik. Þær Brynja Magnúsdóttir og Marthe Sördal skoruðu í dag sín fyrstu mörk fyrir Íslands hönd og kom Brynja sérstaklega sterk inn á mikilvægu augnabliki í leiknum."

Skemmst er að minnast þess að í gær lögðu íslensku stúlkurnar lið Tyrkja, einnig með tveimur mörkum.
Á morgun leikur liðið svo óopinberan æfingarleik gegn Pólverjum en leiknar verða 3 * 25 mínútur.

Mörk Íslands í dag skoruðu:

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 8
Rut Jónsdóttir 5
Arna Sif Pálsdóttir 3
Hanna G. Stefánsdóttir 3
Brynja Magnúsdóttir 1
Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1
Marthe Sördal 1
Karen Knútsdóttir 1
Ásta Birna Gunnarsdóttir 1

Í markinu lék Íris Björk Símonardóttir í 40 mínútur og varði 12 skot og Guðrún Ósk Maríasdóttir í 20 mínútur og varði 7 skot.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?