Carmelo Anthony var vonsvikinn þegar ljóst var að stórleikur hans dugði ekki til að leggja Boston Celtics í nótt. Myndir: Reuters
Carmelo Anthony átti stórleik þegar New York Knicks og Boston Celtic mættust í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Melo, eins og hann er kallaður, skoraði 42 stig, tók 17 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Hin stjarna New York, Amare Stoudamire spilaði ekki nema 17 mínútur í leiknum vegna meiðsla í baki og skoraði aðeins 4 stig.
Þrátt fyrir frábæra einstaklingsframmistöðu Melo þá náði Boston að knýja fram 96-93 sigur en Rajon Rondo var funheitur hjá Boston og skoraði 14 stig í fyrsta leikhluta. Rondo skoraði 30 stig og gaf 7 stoðsendingar. Paul Pierce lagði til 20 stig, Ray Allen 18 og Kevin Garnett 12. Celtics leiður rimmuna 2-0.
Jafnt hjá Magic og Hawks
Dwight Howard skoraði 33 stig og tók 19 fráköst í 88-82 sigri Orlando Magic á Atlanta Hawks. Jamal Crawford var atkvæðamestur hjá Hawks með 25 stig. Magic náði að jafna seríuna 1-1 með sigrinum.
Dallas Mavericks tók 2-0 forystu í rimmu sinni við Portland Trail Blazers í þriðja leik næturinnar með 101-89 sigri. Dirk Nowitzki var að venju stigahæstur hjá Dallas með 33 stig. En LaMarcus Aldrigde skoraði 24 stig og tók 10 fráköst fyrir Portland.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 






Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
