ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Heat og Bulls í góðri stöðu

NBA-úrslitakeppninn byrjar með látum.
09:15 › 19. apríl 2011
Frábær. Stuðningsmenn Chicago Bulls vonast til að Derrick Rose leiði liðið til síns fyrsta meistaratitils síðan Michael Jordan, Scottie Pippen og félagar fóru mikinn á tíunda áratug síðustu aldar.

Frábær. Stuðningsmenn Chicago Bulls vonast til að Derrick Rose leiði liðið til síns fyrsta meistaratitils síðan Michael Jordan, Scottie Pippen og félagar fóru mikinn á tíunda áratug síðustu aldar. Mynd: Reuters

Miami Heat og Chicago Bulls eru komin með 2-0 forystu í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Miami burstaði Philadelphia 76ers í nótt 94-73 þar sem Lebron James skoraði 29 stig, gaf sex stoðsendingar og hirti 7 fráköst.

Dwyane Wade var með mígreniskast en lék samt rúmlega hálftíma í leiknum og skoraði 14 stig. Þriðja stjarnan í liðinu, Chris Bosh steig þá bara upp og skoraði 21 stig og eftir rólega byrjun í fyrsta leik liðanna er Miami komið með 2-0 forskot.

Sama má segja um Chicago Bulls, sem spekingar spá að nái langt í úrslitakeppninni í ár. Derrick Rose var enn á ný frábær í liði Bulls. Hann skoraði 39 stig í fyrsta leiknum og skoraði 36 stig í nótt í 96-90 sigri sinna manna gegn Indiana Pacers. Luol Deng skoraði 18 stig en hjá Pacers var Danny Granger atkvæðamestur með 19 stig. Fjóra sigurleiki þarf til að komast áfram í næstu umferð úrslitakeppninnar og eru Bulls og Heat því á góðri leið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?