ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

„Viljum ekki líta kjánalega út“

Úrslitarimma KR og Stjörnunnar hefst i kvöld
Brynjar Þór Björnsson lék vel gegn Keflavík í undanúrslitunum.

Brynjar Þór Björnsson lék vel gegn Keflavík í undanúrslitunum. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

13:51 › 11. apríl 2011

„Þetta hefur kannski verið of þægilegur tími,“ segir Teitur Örlygsson, þjálfari körfuknattleiksliðs Stjörnunnar, um þann tíma sem Stjarnan hefði getað hvílt sig á meðan KR kláraði sitt frábæra einvígi gegn Keflavík í undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar.

KR og Stjarnan hefja leik í kvöld í úrslitarimmunni sjálfri en þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem Stjarnan leikur til úrslita. „Sagan segir að það sé slæmt að bíða svona lengi. Það sé betra að koma beint úr hörkunni og halda áfram. En það verður bara áskorun fyrir okkur að mæta tilbúnir í rimmuna,“ segir Teitur sem getur haldið áfram að skrifa söguna í Garðabænum á næstu vikum er Stjarnan berst við Vesturbæjarstórveldið í úrslitarimmunni.

Reyndum að ná okkur niður á jörðina
„Ég held að við séum bara ágætlega tilbúnir í þessa rimmu,“ segir Teitur. „Við höfum verið að æfa vel að undanförnu en einnig reynt taka því rólega og koma okkur niður á jörðina. Við höfum horft á leiki KR og Keflavíkur í leik gegn hvort öðru og hvort í sínu lagi. Það kemur samt ekki í ljós hvernig við erum stemmdir fyrir enn á gólfið verður komið,“ segir Teitur, en hvar liggja helstu styrkleikar KR að hans mati?

„Þeir eru ofboðslega hraðir og skora mikið af stigum úr hröðum sóknum. Svo hika þeir ekki heldur við að taka þriggja stiga skot. Við þurfum því að vera frekar fljótir til baka. Ég held að það verði mikið lykilatriði fyrir okkur. En við höfum verið að fara yfir hvað þeir hafa verið að gera gegn Keflavík og reynt að læra af því,“ segir Teitur.

Stjarnan hefur aldrei spilað til úrslita áður og fáir í liðinu þekkja svona mikilvæga leiki. „Við þurfum að passa að enginn sé orðinn saddur. Við viljum ekki líta kjánalega út. Við munum láta þá hafa fyrir þessu og gefa þeim alvöru leiki. Umgjörðin í kringum úrslitin er alltaf svolítið sérstök og auðvitað væru allir körfuboltamenn á landinu til í að vera þar sem við erum núna. Við þurfum bara að halda í sjálfstraustið sem var í liðinu gegn Snæfelli og reyna að kalla fram það besta hjá okkur,“ segir Teitur Örlygsson.

Hefur engar áhyggjur af Teiti
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, er eins og Teitur í fyrsta skipti að þjálfa lið í úrslitarimmu þrátt fyrir að Teitur hafi oft verið þar sem leikmaður. Hrafn var pollslakur og léttur í lund þegar DV náði tali af honum í gær er hann var að fara yfir oddaleikinn gegn Keflavík. Hann gat ómögulega metið hvort væri betra að hafa verið í hvíld eða að klára eins magnaða rimmu og KR var í gegn Keflavík.

„Við erum alla vega hrifnir af því að hafa verið að spila hörkuleiki. Það var fínt að fá þarna fimm leikja einvígi því það sparar manni aðlögunarferli í úrslitunum. Við fórum nú þarna í tvö sjúkrapróf gegn svæðisvörninni og náðum því með stæl í seinna skiptið,“ segir Hrafn en hvar metur hann helstu styrkleika Garðbæinga?

„Styrkleiki þeirra liggur helst í uppsettum leik á hálfum velli. Þegar þeir fá að stilla upp og leita að sínum bestu skorurum eru þeir erfiðir. Við viljum því velja hvar og hverjir taka skotin þeirra. Það má samt ekki gleyma að þetta Stjörnulið er mjög gott og ekkert minna er lagt í það en KR-liðið. Í Stjörnunni eru þrír leikmenn sem koma gagngert hingað til lands til að spila körfubolta sem atvinnumenn og í kringum þá eru flottir íslenskir strákar,“ segir Hrafn.

Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, fór mikinn í undanúrslita viðureigninni gegn Snæfelli og hikaði ekki við að blanda sér í baráttuna. Hrafn þykir nú öllu rólegri á hliðarlínunni.

„Ég hef litlar áhyggjur af Teiti. Við erum fínir félagar. Hann er ótrúlegur keppnismaður en mér getur líka alveg hitnað í hamsi sko. Við munum samt bara takast í hendur um leið og leikurinn er búinn. Frekar vil ég brynja mína menn þegar inn í návígið er komið. Það hefur gerst í leikjum gegn Stjörnunni að snertingar hafa verið meiri en gerist og gengur. Við munum mæta af hörku en ég vil frekar að menn spili körfubolta,“ segir Hrafn Kristjánsson.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?