Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Mynd Auður Haraldsdóttir
Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir, frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar, enduðu í 21. sæti á Evrópumeistaramóti IDSF í 10 dönsum sem fram fór í Moskvu í Rússlandi á laugardag.
Sigurvegarar á mótinu voru Timur Imametdinov og Ekaterina Nikolaeva frá Rússlandi og í öðru sæti voru Bjorn Bitsch og Ashli Williamson frá Danmörku.
Sigurður og Sara voru eina parið frá Íslandi á mótinu, en hvert land má aðeins senda eitt par. Þau unnu sér rétt til þátttöku á mótinu á síðasta Íslandsmeistaramóti en þau sigruðu það mót.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
