Ross Brawn, liðstjóri Mercedes GP í Formúlu 1, segir að bíll liðsins sé of hægfæra nú þegar aðeins ríflega tvær vikur eru í fyrsta mótið í Ástralíu. Einhvern veginn þarf liðið að bæta tíma bílsins um heila sekúndu á hvern hring áður en lokaprófanir bílsins verða gerðar í Barcelona.
W02-bíllinn sem Michael Schumacher og Nico Rosberg aka hefur verið alltof hægur heilt yfir við æfingar. Þó hefur hann við og við náð mjög góðum tímum, en aðeins þegar lítið bensín er á bílnum. Því er erfitt að meta stöðu liðsins eins og er.
„Þetta hefur verið virkilega erfitt fyrir okkur þar sem hraðinn er svo mismunandi eftir því hversu mikið eldsneyti er á bílnum,“ segir Ross Brawn.
„Dekkin eiga eftir að skipta gríðarlegu máli í ár og skynsömu liðin hafa verið að aka bílunum með mikið af eldsneyti á æfingum. Því meira bensín því fyrr eyðast dekkin. Þegar maður nær að æfa þannig sér maður strax hvað bílinn vantar. Fyrir okkur er erfiðara að meta hvar við stöndum.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
