Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Knattspyrnudeild Víkings hefur ákveðið að slíta samstarfi við Leif Garðarsson þjálfara liðsins frá og með deginum í dag, 3. mars 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Birni Einarssyni formanni Víkings.
Ólafur Ólafsson aðstoðarþjálfari Víkings tekur tímabundið að sér þjálfun liðsins en leit að eftirmanni Leifs er þegar hafin.
Leifur tók við liði Víkings haustið 2008 og stýrði því til sigurs í 1. deild síðastliðið haust. Í tilkynningunni er honum þakkað fyrir störf sín í þágu félagsins og jafnframt óskað velfarnaðar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
