Lewis Hamilton á McLaren náði frábærum árangri í fyrstu keppni ársins í Ástralíu á sunnudaginn. Hamilton endaði í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel en heljarinnar uppfærsla á McLaren-bílnum tveimur dögum fyrir keppnina svínvirkaði.
Aðeins viku fyrir fyrstu keppni stefndi í allsvakalega erfitt tímabil hjá stórliði McLaren. Bíllinn var alltof hægur og hafði undirbúningstímabilið verið liðinu gríðarlega erfitt.
McLaren-menn ákváðu því að taka mikla áhættu og henda á bílinn stórri uppfærslu á föstudaginn fyrir keppnina. Það svona svínvirkaði þar sem Hamilton náði næstbestum tíma í tímatökunni og endaði keppnina í öðru sæti á eftir hinum ósnertanlega Vettel.
„Ég er kominn aftur í slaginn,“ sagði Hamilton skælbrosandi eftir keppnina. „Ég er aðeins nokkrum stigum á eftir fyrsta manni sem er á miklu hraðskeiðari bíl. Við munum brúa þetta bil á milli okkar og Red Bull, ég er alveg viss um það. Það er samt alveg ljóst að Red Bull er með alveg frábæran bíl. Við sýndum samt í dag að við getum alveg keppt við þá. Við þurfum bara að komast enn nær þeim til að setja á þá smá pressu,“ sagði Hamilton sem stóð á verðlaunapalli í 38. sinn á sunnudaginn.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
