ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Vettel: Tímabilið verður jafnt

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:21 › 28. mars 2011
Vettel vann fyrsta mót ársins í Ástralíu.

Vettel vann fyrsta mót ársins í Ástralíu. Mynd Reuters

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Sebastian Vettel, hóf titilvörnina með sigri í gær þegar hann kom langfyrstur í mark í Ástralíukappakstrinum, fyrsta Formúlumóti nýs keppnistímabils. Vettel var á ráspól, hélt fyrsta sætinu eftir ræsingu, og var aldrei ógnað.

Hann var því með pálmann í höndum sér frá byrjun til enda, gat nýtt alla herfræði og dekkjataktík eins og hann vildi og varð á endanum 22 sekúndum fljótari í mark en Lewis Hamilton á McLaren.

Það er engum blöðum um það að fletta að Red Bull-bíllinn sem Vettel og Webber aka ber höfuð og herðar yfir alla aðra í Formúlunni, rétt eins og í fyrra. Vettel, sem varð yngsti heimsmeistari sögunnar síðasta haust, reyndi þó að gera lítið úr orðinu drottnun sem allir vilja nota um hann og bílinn.

„Ég vil ekki nota þetta orð þegar aðeins ein keppni er búin. Við áttum frábæra keppni í dag, söfnuðum fullt af stigum og höfðum gaman af,“ sagði Vettel við fréttamenn eftir kappaksturinn í Ástralíu.

Það er þó erfitt fyrir Vettel að keyra niður háfleyg orð um bílinn og sig sjálfan því hann var ríflega 0.7 sekúndum fljótari en næsti maður í tímatökunni og var kominn með 2,4 sekúndna forskot á Lewis Hamilton eftir fyrsta hringinn í Ástralíu.

„Tímabilið verður jafnt,“ ítrekaði Þjóðverjinn ungi. „Það er bara aðalatriðið að komast í mark. Bíllinn var mjög góður þessa helgina og sérstaklega fljótur í keppninni. Fyrst og fremst var hann þó mjög traustur. Við gerðum heilmikið fyrir okkur sjálfa á laugardeginum með því að halda Lewis Hamilton og McLaren fyrir aftan okkur. Ég mun samt segja áfram við strákana að við eigum langt og erfitt tímabil í vændum,“ sagði Vettel.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?