ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Sigurður og Hanna í 16. sæti á EM í samkvæmisdönsum

Góður árangur á EM í suður-amerískum samkvæmisdönsum
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
21:12 › 26. mars 2011
Sigurður og Hanna á Evrópumeistaramótinu í dag.

Sigurður og Hanna á Evrópumeistaramótinu í dag. Mynd IDSF / YouTube

Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir, frá Dansíþróttafélagi Kópavogs, enduðu í 16. sæti á Evrópumeistaramóti IDSF, alþjóða dansíþróttasambandsins, í suður-amerískum samkvæmisdönsum sem fram fór í Marseille í Frakklandi í kvöld.

Auk þeirra Sigurðar og Hönnu á mótinu voru Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Margrét Yaghi, frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar, sem höfnuðu í 62. sæti. Níels Einarsson danskennari var meðal dómara á mótinu en hann er fyrsti íslenski dómarinn til að dæma Evrópumeistaramót á vegum IDSF.

Bæði pörin tryggðu sér fyrr á árinu rétt til þátttöku á heimsmeistaramóti IDSF í suður-amerískum dönsum en það fer fram í Singapore 10. september næstkomandi. Keppnisréttin tryggðu þau sér á Íslandsmeistaramótinu í suður-amerískum dönsum en þar sigruðu Sigurður og Hanna og Jón Eyþór og Denise í öðru sæti.

Sigurður og Hanna dansa Cha cha cha í 2. umferð mótsins:



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?