ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Uppnám á Íslandsmóti: „Ég er svo hneyksluð yfir þessu“

Þremur Norðurlandameisturum og íslenskum landsliðsmönnum meinuð þátttaka á Íslandsmótinu í Taekwondo.
Birgir Olgeirsson birgir@dv.is
23:16 › 19. mars 2011
Sara Magnúsdóttir. Mynd/Taekwondo.is

Sara Magnúsdóttir. Mynd/Taekwondo.is

  •  Meisam Rafiei

    Meisam Rafiei

„Ég er svo hneyksluð yfir þessu og finnst þetta vera óíþróttamannsleg hegðun,“ segir Norðurlandameistarinn í Taekwondo Sara Magnúsdóttir í samtali við DV.is en hún var ein af níu keppendum sem var meinað að keppa á Íslandsmótinu í Taekwondo í dag. Forsaga málsins er sú að Sara hafði gengið í Bardagaklúbb Reykjavíkur(BR) en sá klúbbur hafði ekki tilskilin leyfi til þess að taka þátt á mótinu.

Tóku þá félagar BR til þess ráðs að skrá sig á mótið undir merkjum liðs Selfoss eftir að hafa fengið ráðleggingar frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur(ÍBR) um það. Þegar svo á mótsstað var komið og allir reiðubúnir í bardaga var þeim tilkynnt að þau mættu ekki keppa undir merkjum Selfoss liðsins. Mikil óánægja var með þessa ákvörðun, að leyfa ekki þessum níu keppendum að taka þátt, en á meðal þeirra voru þrír Norðurlandameistarar í íþróttinni og langflestir af þeim í íslenska landsliðinu í Taekwondo. Svo fór að lið Selfoss dró sig úr mótinu og gengu 24 keppendur liðsins út af mótsstaðnum.

Sara var komin í keppnisgallann og út á gólf og beið eftir að hefja keppni. Þá upphófst umræða um hana á meðal þjálfara um að hún mætti ekki keppa. Sara segir að þau níu sem skráðu sig í Selfoss liðið hefðu verið búin að hafa samband við mótshaldarann á mánudag og hann gaf grænt ljós á þátttöku þeirra með Selfoss-liðinu á mótinu. Þau mættu einnig í vigtun í gær þar sem ekkert var sett út á þátttöku þeirra.

„Byrjaði allt á mér“
„Þetta byrjaði allt saman á mér. Það var keppandi sem er með mér í landsliðinu sem var ósáttur við það að ég væri skráð í Selfoss. Við fengum að vita það á staðnum að við þyrftum að vera búin að skrá okkur þrjátíu dögum fyrir Íslandsmótið. Við gerðum eins og ÍBR sagði okkur að gera, að skrá okkur í annað félag,“ segir Sara en fljótleg eftir að gerð var athugasemd við hennar þátttöku með Selfoss-liðinu var slíkt hið sama gert við félaga hennar sem æfa undir merkum BR og höfðu skráð sig í Selfoss-liðið.

„Við vorum níu sem fengum ekki að keppa og þar af leiðandi tók allt Selfoss-liðið sitt saman og vildi ekki keppa undir þessum kringumstæðum, þannig að enginn frá Selfossi tók þátt,“ segir Sara.
Hún segir að með þeirri ákvörðun hafi um níutíu prósent af íslenska landsliðinu í Taekwondo verið bannað að keppa á Íslandsmótinu í dag.

„Afbrýðissemi“
Hún segir svona atvik ekki hafa gerst í fyrsta sinn í dag. „Þetta er beint að okkar þjálfara Sigursteini Snorrasyni. Hann hefur stofnað mörg mörg félög hér á Íslandi. Hann á heiðurinn á bakvið flesta af þeim sem keppa fyrir hönd Íslands í Taekwondo. Hann hefur verið að gera mjög góða hluti og ég er farin að halda að þarna sé einhver afbrýðissemi í gangi. Þetta er ekki í fyrsta skipti og ekki í síðasta skipti sem þetta gerist,“ segir Sara en Sigursteinn stofnaði nýverið BR.

Hún ítrekar að það var ekki í þeirra plönum að taka þátt í liðakeppni með Selfossi heldur einungis sem einstaklingar. Einn af þeim níu sem voru skráðir til leiks fyrir Selfoss var landsliðsþjálfari Íslands Meisam Rafiei sem er þrefaldur heimsmeistari í íþróttinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?