Mercedes hefur ekki útilokað að framlengja samning sinn við Michael Schumacher haustið 2012 þegar þriggja ára samningi hans lýkur.
Norbert Haug, einn yfirmanna liðsins, segir það vel geta gerst að Schumacher aki fyrir liðið tímabilið 2013 en þá verður hann orðinn 44 ára.
„Ef Michael vill halda áfram að keyra og við komumst að samkomulagi um laun þá er ég meira en til í að halda honum. Michael lítur virkilega vel út þessa dagana,“ segir Norbert Haug.
Endurkoma Schumacher á síðasta tímabili ollu töluverðum vonbrigðum en hann endaði í tíunda sæti stigakeppninnar og komst meira í fréttirnar fyrir háskaakstur en flott tilþrif.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
