Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Mynd Auður Haraldsdóttir
Íslandsmeistaramótið í 10 dönsum fór fram um helgina. Sigurvegarar og Íslandsmeistarar eru Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Þau sigruðu í báðum greinum samkvæmisdansa, suður-amerískum og sígildum samkvæmisdönsum, en á mótinu er samanlagður árangur í þessum greinum sem gildir.
Í öðru sæti voru þau Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Margrét Yaghi og í því þriðja voru Freyþór Össurarson og Eyrún Stefánsdóttir, en bæði pörin eru frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Í flokki ungmenna voru það Freyþór og Eyrún sem unnu öruggan sigur og í flokki unglinga 14-15 ára voru það Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir sem unnu einnig öruggan sigur. Í flokki unglinga 12-13 ára voru það svo Davíð Bjarni Chiarolanzio og Rakel Matthíasdóttir sem unnu.
Samhliða Íslandsmeistaramótinu fór fram DSÍ Open en þar unnu Sigurður Már og Sara í bæði suður-amerískum og sígildum dönsum. Þá fór einnig fram bikarmeistaramót með grunnaðferð og opið dansmót fyrir byrjendur. Mótin voru skipulögð af Dansíþróttasambandi Íslands og unnu sigurvegarar á Íslandsmeistaramótinu sér rétt til þátttöku á heims- og Evrópumeistaramótum á vegum Alþjóða dansíþróttasambandsins, IDSF.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
