Tiger Woods lét gremju sína í ljós með að hrækja á 12. flöt vallarins á Dubai Desert Classic-mótinu í gær. Var sektaður fyrir athæfið. Mynd: Reuters
Kylfingurinn Tiger Woods átti skelfilegan lokadag á Dubai Desert Classic í gær sem varð til þess að hann náði ekki að vinna sitt fyrsta mót í fimmtán mánuði. Í dag er það ekki slök spilamennska hans sem vekur athygli heldur atvik sem átti sér stað á 12. flöt vallarins.
Woods var eitthvað ósáttur þegar hann var að stilla upp kúlunni sinni og hrækti á flötina. Atvikið náðist, eins og flest annað sem kylfingar gera á golfvellinum, á mynd og hefur Woods verið sektaður af forsvarsmönnum Evrópumótaraðarinnar enda þykir framkoma sem þessi ekki sæmandi á golfvöllum.
Tiger var aðeins einu höggi á eftir efstu mönnum fyrir lokadaginn en hann klúðraði málunum á lokahringnum. Þessi fyrrverandi besti kylfingur veraldar hafnaði í tuttugasta sæti í mótinu og var langt frá sínu besta. Hrákinn og sektin í kjölfarið kórónaði því ömurlegan dag hjá honum.
Tiger vann síðast mót í nóvember árið 2009, en eins og flestir vita hefur hann glímt við ýmis vandræði utan vallar undanfarin misseri. Eyðimerkurganga Tigers heldur því áfram.
Myndband af subbuskapnum má sjá hér:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
