ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Jón Margeir og Kolbrún íþróttafólk ársins hjá ÍF

Annað árið í röði hjá Jóni Margeiri
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:36 › 8. desember 2011
Jón Margir og Kolbrún voru best á árinu sem leið.

Jón Margir og Kolbrún voru best á árinu sem leið. Mynd ÍF

Íþróttasamband fatlaðra hefur útnefnt þau Jón Margeir Sverrisson úr Ösp/Fjölni og Kolbrúnu Öldu Stefánsdótur úr Firði/SH íþróttafólk ársins 2011. Jón og Kolbrún synda bæði í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.

Þetta er annað árið í röð sem Jón Margeir hlýtur nafnbótina íþróttamaður ársins en í fyrsta sinn sem Kolbrún hlýtur titilinn. Hófið fór fram á Radisson Blu Hótel Sögu í gær.

Bæði Jón og Kolbrún eiga glæsilegt ár að baki í sundlauginni, Jón með fjögur heimsmet og 41 Íslandsmet og Kolbrún með 10 Íslandsmet.

Framundan hjá þessu öfluga íþróttafólki er undirbúningur og keppni þar sem allir líta nú til Ólympíumóts fatlaðra sem fram fer í London á næsta ári.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?