Með hverjum deginum sem líður eykst kostnaður vegna Ólympíuleikanna í Lundúnum sem fram fara á næsta ári og eru margir farnir að hafa áhyggjur. Nú síðast varð það ljóst að kostnaður vegna öryggisgæslu á leikunum hefur nær tvöfaldast og er reiknað með að hún kosti allt að 553 milljónum punda eða 102 milljörðum króna.
Kostnaður jókst þegar ákveðið var að fjölga gæsluliðum um 14.000. Þá hefur kostnaðurinn við opnunar- og lokahátíðina aukist um 41 milljón punda eða 7 milljarða króna.
Bretar hafa gefið sér verðáætlun upp á 9,3 milljarða punda eða 1.700 milljarða króna en ráðherrann sem sér um Ólympíuleikana, Hugh Robertsson, óttast ekki að Bretar fari fram úr þeirri áætlun. Hann segir Ólympíunefndina hafa haldið sig 910 milljónum punda undir áætlun við mannvirkjagerð og því geti hún auðveldlega tekið á sig svona aukaútgjöld.
Endurskoðendur ríkisins hafa þó miklar áhyggjur af því að farið verði fram úr verðáætluninni, sérstaklega eftir þessa gríðarlegu fjölgun gæsluliða á leikunum. „Það er okkar mat að verðáætlunin hangi á bláþræði og ekki sé loku fyrir það skotið að Ólympíunefndin þurfi að biðja um meira fé áður en langt um líður,“ segja þeir.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
