ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Rándýrt en spennandi verkefni

Ísland barist lengi fyrir breytingum og rann blóðið til skyldunnar að vera með
Ísland er aftur með í Evrópumóti landsliða.

Ísland er aftur með í Evrópumóti landsliða. Mynd DV

07:00 › 6. desember 2011
  • Hannes S. Jónsson

    Hannes S. JónssonMynd DV

„Það lá mikil spenna í loftinu,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, um dráttinn í Evrópukeppni landsliða sem fram fór í höfuðstöðvum FIBA Europe á sunnudaginn. „Það var tvennt sem við vorum að horfa til. Hversu löng ferðalög myndu bíða okkar og hversu sterkum þjóðum við myndum mæta,“ segir Hannes.

Því var fljótsvarað þegar kom að drættinum. Ferðalögin gátu vart verið mikið lengri en Ísland dróst í riðil með Serbíu, Svartfjallalandi, Ísrael, Slóvakíu og Eistlandi. „Þetta er ótrúlega spennandi en krefjandi samt sem áður. Ég segi að það sé frábært að mæta Serbum sem er og hefur verið ein fremsta körfuboltaþjóðin til margra ára. Það er frábært tækifæri að fá Serbíu heim og mæta henni úti. Þetta verður erfitt verkefni en ótrúlega spennandi,“ segir Hannes.

Urðu að vera með
Ekki er langt síðan landsliðið var endurvakið eftir tveggja ára hlé. Var það meðal annars vegna þess að Ísland er ein þeirra þjóða sem hefur barist hvað harðast fyrir breytingum á keppnisfyrirkomulaginu. Hingað til hefur þjóðum verið skipt niður í A-, B- og C-deildir og hefur því minni þjóðum aldrei gefist kostur á að spila við stóru strákana. Með kjöri Ólafs Rafnssonar sem forseta FIBA Europe hefur það breyst og er keppnisfyrirkomulagið nú svipað og þekkist í fótboltanum – undanriðlar og styrkleikaröðun.

Hannes viðurkennir að Ísland sé að fara taka á sig erfiðan pakka fjárhagslega séð en ekki hafi verið annað hægt en að taka þátt. „Keppnisfyrirkomulagið er búið að vera mikið baráttumál hjá okkur og það er ein helsta ástæða þess að við skráðum okkur aftur til leiks. Þetta mun kosta okkur ansi mikið en þar sem þetta hefur verið okkur svo mikið kappsmál rann okkur einfaldlega blóðið til skyldunnar,“ segir Hannes.

Reyna að hagræða ferðum
Hannes er ytra að ræða við hin liðin í riðlinum og reyna að komast að samkomulagi um leikdaga og tíma en allir leikirnir verða spilaðir á milli 15. ágúst og 11. september á næsta ári. Vegna fjölda ferðalaga þarf Hannes að reyna að raða þeim upp á sem hagstæðasta mátann. „Óskadæmi fyrir okkur er til dæmis að spila við Serbíu og Svartfjallaland í sömu ferðinni en ekki koma til dæmis heim á milli þeirra leikja. Það væri best til að gera ferðalagið sem ódýrast,“ segir Hannes en þær viðræður eru Íslandi mikilvægari en öðum þjóðum.

„Það er frekar mikilvægt fyrir okkur en þá þurfa náttúrulega allar þjóðirnar í riðlinum að vera samstíga. Hver og ein þjóð þarf að taka þátt í þessu. Þetta kemur ekkert í ljós í dag heldur á næstu dögum,“ segir Hannes sem gælir við þriðja sætið í riðlinum. „Leikirnir gegn Serbíu, Ísrael og Svartfellingum verða erfiðir en við eigum að geta unnið Slóvaka og Eista. Mér finnst við allt eins geta stefnt á þriðja sætið í riðlinum.“

Ríkið þarf að hjálpa til
„Við erum að taka ansi mikla áhættu með þessu,“ segir Hannes um fjárhagslegu hliðina og bætir við að þessi Evrópukeppni sé pakki upp á að minnsta kosti 20 milljónir íslenskra króna. Hingað til hefur KKÍ verið duglegt að minnka hjá sér skuldirnar er nú á henda sér aftur í djúpu laugina og til þess þurfi hjálp. „Við þurfum að treysta á að fyrirtækin heima á Íslandi hjálpi okkur.

Sérstaklega þarf svo ríkisvaldið að fara að endurskoða sín mál varðandi hvað það er að setja í afreksíþróttir,“ segir Hannes og fullyrðir að Ísland sé að fá langminnst þjóðanna í kringum okkur, samt séu þær þjóðir sumar hverjar að kvarta.

„Við eigum alltaf að taka þátt í mótum bestu þjóða en fáum aldrei pening til þess. Það er bara grín það sem er í gangi núna miðað við aðrar þjóðir í kringum okkur. Ég er alls ekki að segja að ríkisvaldið eigi að borga allt saman, okkur ber skylda til að finna styrki, en það er hægt að gera miklu meira. Það er orðið áhyggjuefni þegar stjórnmálamenn hafa engan áhuga á afreksíþróttum nema þegar árangur næst. Það er ekkert alltaf hægt að ná árangri með ekkert á milli handanna,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?