ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Völvan: Stórt og fornfrægt íþróttafélag í Reykjavík gjaldþrota

Erfiðleikar hjá íþróttafélögum
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:00 › 31. desember 2011
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Völvan sér fjárhagsvandræði íþróttafélaga í kastljósinu á nýju ári. Í ljós kemur að nokkur félög eru í raun svo illa stödd fjárhagslega að þeim er ekki heimilt að taka þátt í keppni, til dæmis í Pepsi deild karla. Margir verða til þess að heimta að hið opinbera, það er sveitarfélög, hlaupi undir bagga en því er mótmælt kröftuglega enda fá sveitarfélög aflögufær.

Völvan sér stórt og fornfrægt íþróttafélag í Reykjavík verða gjaldþrota á árinu. Mannvirki þess standa auð meðan deilur geisa um ábyrgðina. Að lokum rennur starfsemi þess saman við annað félag mörgum til mikillar armæðu.

Völva DV hefur kastað teningunum en spádómar hennar birtast í meira en 100 síðna helgar og áramóta blaði DV sem komið er út. Þar ber hæst spá hennar um kærur og krassandi uppgjör. Áskrifendur DV.is geta lesið alla Völvuspá ársins 2012 hér á netinu og ef ýtt er á meira geta þeir lesið alla opinberanir Völvunnar varðandi íþróttir á árinu 2012.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?