ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Skelltu þér á skíði í dag: Skíðasvæði opin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:34 › 28. desember 2011

Aðdáendur skíðaíþróttarinnar geta verið sáttir í dag þar sem víða er ágætis skíðafæri.

Í dag verður opið í Bláfjöllum frá kl. 10 til 21 í kvöld. Þar er veðurspáin slæm seinnipartinn og því gæti þurft að loka á bilinu frá kl. 17-19 vegna mikils vinds. Gríðarleg aðsókn var að skíðasvæðinu í gær og þurfti fólk að bíða í löngum röðum til að kaupa aðgang að lyftunum jafnvel í rúman klukkutíma.

Skíðasvæðið í Tindastóll verður opið frá klukkan tólf til fjögur í dag, þar er mikill og góður snjór, hægviðri og tæplega 10 gráðu frost og stjörnubjartur himinn.
Opið er í Böggvisstaðarfjalli á Dalvík frá kl. 12 til 16. Þar er fínt veður og færi. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri er opið frá klukkan tíu til sjö í dag og er ágætis skíðafæri þar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?