ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

„Ég hef náð öllum mínum markmiðum“

Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir átti frábært ár
15:28 › 28. desember 2011
Sara Björk átti algjört draumaár í boltanum bæði með félagsliði og landsliðinu.

Sara Björk átti algjört draumaár í boltanum bæði með félagsliði og landsliðinu.

„Þetta er búið að vera frábært ár og ég hef náð öllum mínum markmiðum,“ segir landsliðskonan unga í fótbolta Sara Björk Gunnarsdóttir. Þessi 21 árs miðjumaður hefur verið fastamaður í landsliði Íslands frá átján ára aldri en Sara tók stórt skref í vor og fór út í atvinnumennsku frá Breiðabliki þar sem hún spilaði áður.

Atvinnumennskuna tók hún með trompi. Hún var fljótlega orðin fastamaður í meistaraliði LdB Malmö í sænsku deildinni sem er ein sú besta í heimi. Sara skoraði svo tólf mörk í deildinni og fjögur til viðbótar í Meistaradeildinni þar sem liðið er komið í átta liða úrslit og mætir þar stórliði Frankfurt frá Þýskalandi. Með landsliðinu byrjaði Sara alla níu leiki ársins og skoraði eitt mark. Hún var meðal annars lykilmaður í íslenska liðinu sem náði öðru sæti á æfingamótinu í Algarve þar sem sterkustu þjóðir heims mætast í byrjun hvers árs.

Sér ekki eftir að grípa tækifærið
Sara er í jólafríi hér heima og var í mestu makindum í Hafnarfirðinum þegar DV náði í hana. Sara ólst upp í Hafnarfirði, í Haukum. Hún segist hafa náð öllum markmiðum sínum á árinu sem voru ansi hástemmd. „Í fyrsta lagi ákvað ég að fara út í atvinnumennsku til Svíþjóðar. Ég fór í Malmö sem er mjög sterkt lið. Þegar ég var komin þangað var ég ákveðin í að komast í byrjunarliðið og ég náði því. Svo var annað markmið að skora tíu mörk í deildinni og ég náði því. Ég vildi líka vinna titil og hann unnum við þannig að ég náði því. Það gekk því eiginlega allt upp,“ segir Sara.

Lengra viðtal við Söru Björk er að finna í DV í dag

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?