ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Íslensk skíðakona alvarlega slösuð eftir slys á æfingu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:06 › 27. desember 2011
Fanney Guðmundsdóttir

Fanney Guðmundsdóttir Skjáskot skíðasamband Íslands

Landsliðskonan Fanney Guðmundsdóttir slasaðist alvarlega á aðfangadag þegar hún var við æfingar í Geilo í Noregi. Fanney er landsliðskona í skíðaíþróttum.

Mbl.is greinir frá því að Fanney hafi verið á miklum hraða þegar hún datt og þeyttist út af brautinni. Hún mun hafa lent á tré og brotið fjölmörg bein. Hún var bæði meðvitundarlaus og andaði ekki þegar að komið var að henni, en með skjótum og réttum viðbrögðum þeirra sem komu að henni var hægt að koma lífi í hana. Hún hlaut alvarlega áverka á mænustofni og lamaðist fyrst í stað fyrir neðan háls. Í fyrramálið verður reynt að framkvæma mjög flókna aðgerð á hálsi hennar og tveimur efstu hryggjaliðum. Fanney dvelur á Ullevål sjúkrahúsinu í Ósló.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?