Nú er ljóst hvaða tíu íþróttamenn koma til greina sem íþróttamaður ársins 2011 en tilkynnt verður um hver hlýtur þá nafnbót fimmtudaginn 5. janúar í beinni útsendingu Sjónvarpsins.
Handboltamenn hafa hlotið nafnbótina íþróttamaður ársins undanfarin þrjú ár. Alexander Petersson í fyrra og Ólafur Stefánsson tvö ár á undan því.
Í ár eiga knattspyrnumenn flesta á listanum yfir þau tíu bestu eða fjóra. Tveir karlar, Heiðar Helguson og Kolbein Sigþórsson, og tvær konur, Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra B. Helgadóttir koma til greina sem íþróttamaður ársins..
Handboltinn á tvennt á listanum, Aron Pálmarsson og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur, og jafnmargar tilnefningar fær frjálsíþróttafólkið en á listanum yfir þau tíu bestu eru þau Ásdís Hjálmsdóttir og Kári Steinn Karlsson.
Körfuboltinn og golfið eiga svo sitthvorn fulltrúann, þá Jakob Örn Sigurðarson og Ólaf Björn Loftsson
Það eru Samtök Íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu en listann yfir þau tíu bestu árið 2011 má lesa hér að neðan.
Tíu bestu í stafrófsröð:
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, handboltakona hjá Val
Anna Úrsúlu var lykilmaður í liði Vals sem varði Íslandsmeistaratitil sinn í N1-deild kvenna. Þá spilaði hún risastórt hlutverk hjá íslenska landsliðinu, bæði í því að tryggja sig inn á HM í Brasilíu og svo þegar á mótið var komið var hún einn albesti leikmaður Íslands. Hún var svo undir lok árs kjörin handboltakona ársins hjá HSÍ
Aron Pálmarsson, handboltamaður hjá Kiel
Skyttan öfluga úr Hafnafirði hefur alltaf verið að fá stærra og stærra hlutverk hjá Kiel. Í vor tryggði liðið sér bikarmeistaratitilinn með sigri á Flensburg í úrslitaleik en þar var Aron markahæsti leikmaður liðsins. Kiel hefur ekki enn tapað leik í Þýskalandi það sem af er leiktíð. Þá átti Aron einnig prýðilegt ár með íslenska landsliðinu og var áberandi í fyrstu leikjum Íslands á HM í byrjun árs. Hann var kjörinn handboltamaður ársins af HSÍ.
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir átti gott ár og endaði meðal annars 13. sæti á HM og var einu sæti frá því að komast í úrslit. Ásdís toppaði sig einmitt á HM og náði þar besta árangri sínum á árinu þegar hún kastaði 59,15 metra. Hún keppti einnig á demantamótaröðinni þar sem aðeins þeir bestu keppa og þá er hún búin að tryggja sig inn á Ólympíuleikana. Hún er frjálsíþróttakona ársins hjá FRÍ.
Heiðar Helguson, knattspyrnumaður hjá QPR
Framherjinn nautsterki var lykilmaður í sigri QPR í Championship-deildinni á Englandi. Hann var orðinn fastamaður í liðinu eftir áramót og skoraði þá grimmt og lagði upp. Í ensku úrvalsdeildinni hefur hann farið á kostum og skorað sjö mörk og lagt upp tvö. Með íslenska landsliðinu var hann jafnbesti maður liðsins á árinu en hann hefur nú lagt landsliðsskóna á hilluna. Heiðar var útnefndur knattspyrnumaður ársins af KSÍ í ár.
Jakob Örn Sigurðarson, körfuboltamaður hjá Sundsvall Dragons
Jakob varð ásamt Hlyni Bæringssyni Svíþjóðarmeistari í körfubolta í vor eftir rosalega úrslitarimmu sem endaði í oddaleik. Það var Jakobi að þakka að Sundsvall fékk oddaleikinn og í honum steig hann upp og var besti maður liðsins. Heilt yfir átti Jakob frábært tímabil og var kjörinn íþróttamaður Sundsvall á árinu sem og körfuboltamaður ársins hjá KSÍ. Þegar íslenska landsliðið kom aftur saman í sumar og keppti á Norðurlandamótinu var Jakob stigahæstur Íslands á mótinu.
Kári Steinn Karlsson, frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki
Kári Steinn Karlsson er nýjasti Ólympíufari Íslendinga en hann kom rækilega á óvart þegar hann náði Ólympíulámarkinu í Maraþoni í Berlín í sumar. Það var í fyrsta skiptið á hans ferli sem hann hljóp heilt maraþon en í Berlín bætti hann 26 ára gamalt Íslandsmet um tæpar tvær mínútur og tryggði sig inn á ÓL í Lundúnum. Hann náði 50. besta tíma allra Evrópubúa á árinu og var kjörinn frjálsíþróttamaður ársins hjá FRÍ.
Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrnumaður hjá Ajax
Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson fór á kostum með liði sínu AZ í byrjun árs og skoraði meðal annars fimm mörk í einum og sama leiknum gegn VVV Venlo. Í sumar var hann svo seldur til hollenska stórliðsins Ajax þar sem hann fór vel af stað og var að skora grimmt áður en hann meiddist illa. Með U21 árs landsliðinu í sumar var Kolbeinn einn albesti maður liðsins sem tókst þó ekki að koma sér upp úr riðli. Kolbeinn skoraði markið sem tryggði Íslandi sigur á Kýpur í haust en það var eini sigur landsliðsins á árinu. Hann hefur skorað fjögur mörk í átta landsleikjum.
Ólafur Björn Loftsson, golfari úr Nesklúbbnum
Íslandsmeistarinn í höggleik frá árinu 2009 braut blað í sögu íslensks íþróttalífs í sumar þegar hann tryggði sig inn á PGA-mót með því að vinna sterkt áhugamannamót. Þegar á stóra sviðið var komið stóð Ólafur sig með sóma og var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrnukona hjá LdB Malmö
Hin unga og bráðefnilega Sara Björk Gunnarsdóttir skellti sér í atvinnumennskuna í ár þegar Svíþjóðarmeistarar Malmö sóttust eftir henni. Í Svíþjóð fór hún hreinlega á kostum, vann sér strax inn byrjunarliðssæti og skoraði sjö mörk í 20 leikjum fyrir Malmö sem varði titilinn. Þá hefur hún einnig staðið sig frábærlega í Meistaradeildinni þar sem liðið er enn að keppa. Sara byrjaði alla níu landsleiki Íslands á árinu, var einn albesti leikmaður liðsins og skoraði eitt mark.
Þóra B. Helgadóttir, knattspyrnukona hjá LdB Malmö
Landsliðsmarkvörðurinn Þóra Helgadóttir sýndi í ár enn og aftur að hún er einn albesti markvörður heims. Hún var lykilmaður í því að tryggja Malmö sinn annan Svíþjóðartitil í röð og eins og Sara hefur hún farið á kostum í Meistaradeildinni. Þóra var einn besti leikmaður landsliðsins á Algarve-mótinu í byrjun árs og svo fékk hún ekki á sig nema eitt mark í fimm leikjum í undankeppni EM 2013.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 













Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
