ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Gunnar Nelson snýr aftur í búrið í febrúar

Bardagi hans verður aðalatriðið á Cage Contender
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:30 › 21. desember 2011
Mikil eftirvænting er í Bretlandi fyrir að sjá Gunnar aftur í búrinu.

Mikil eftirvænting er í Bretlandi fyrir að sjá Gunnar aftur í búrinu. Mynd Kristinn Jóhannsson

Bardagaíþróttakappinn Gunnar Nelson keppir í sínum fyrsta bardaga í blönduðum bardagalistum, MMA, í tæpt eitt og hálft ár í febrúar á næsta ári. Bardagi hans verður aðalatriðið á næsta kvöldi Cage Contender-bardagaraðarinnar sem fer fram þann 25. febrúar í Dyflinni á Írlandi.

Þetta staðfestir faðir hans og umboðsmaður, Haraldur Dean Nelson, við bardagafréttavefinn MMAViking.com. Ekki hefur verið ákveðið hver mætir Gunnari en síðast þegar hann keppti á Cage Contender niðurlægði hann Bretann Danny Mitchell með því að hengja hann í fyrstu lotu.

Gunnar tók sér frí frá keppni í MMA í september í fyrra eftir að hafa rúllað upp einni vonarstjörnu Breta, Eugene Fadiora, með því að hengja hann í fyrstu lotu á BAMMA-bardagamótaröðinni. Hann hefur eytt síðasta ári í æfingar en keppt bæði í gólfglímu og brasilísku jiu-jitsu með góðum árangri.


Tengist: Gunnar Nelson

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?