Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
15 rússneskir fjallaklifursmenn ætla að verða fyrstir til að ná að klífa næsthæsta fjall í heimi, K2, á vetrartíma. Fjallið liggur á landamærunum milli Kína og Pakistan og er 8.611 metrar að hæð.
Everest, hæsta fjall jarðar var fyrst klifið um vetur árið 1980 en K2 hefur ekki enn verið klifið á þessum árstíma. K2 er alræmt fyrir harða vetra en leiðtogi hópsins sagði: „Þetta er aðeins mögulegt fyrir rússneskan hóp.“
Pólskur fjallaklifursmaður reyndi að klífa fjallið á vetrartíma árið 1987 en lið hans komst ekki lengra en 7300 metrar. Þá hafði vindurinn tætt tjöld og reipi liðsins.
Liðið hefur fjallgönguna um jólin en búist er við því að gangan taki um tvo og hálfan mánuð.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
