ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Mörg efnilegustu börn landsins á MS Jólaskákmótinu í Ráðhúsinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:03 › 16. desember 2011
Nansý Davíðsdóttir.

Nansý Davíðsdóttir.

Um 80 börn á aldrinum 6 til 12 ára eru skráð til leiks á Jólaskákmóti MS og Skákakademíu Reykjavíkur, sem hefst í Ráðhúsinu klukkan 13 laugardaginn 17. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skákakademíunni. Meðan börnin leika listir sínar mun yngsti landsliðsmaður Íslands bjóða gestum á öllum aldri í fjöltefli.

„Skákakademía Reykjavíkur hefur á síðustu árum unnið að útbreiðslu skáklistarinnar í grunnskólum borgarinnar, auk þess að skipuleggja margskonar viðburði og hátíðir. MS hefur frá upphafi verið meðal helstu bakhjarla Skákakademíunnar. Heiðursgestur á Jólaskákmótinu er Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra.

Gestum og áhorfendum er boðið að mæta Hjörvari Steini Grétarssyni í fjöltefli. Hjörvar Steinn er 18 ára og yngsti landsliðsmaður Íslands. Hann fór á kostum á nýafstöðnu Evrópumóti landsliða og náði tveimur áföngum að stórmeistaratitli.
Jólaskákmótið í Ráðhúsinu stendur frá klukkan 13 til 15.30 og eru allir hjartanlega velkomnir,“ að því er fram kemur í tilkynningunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?