ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Clippers landaði Chris Paul

Einn besti leikstjórnandi NBA
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:10 › 15. desember 2011
Chris Paul genginn til liðs við Clippers.

Chris Paul genginn til liðs við Clippers. Mynd: Reuters

Eftir miklar vangaveltur undanfarna daga hefur nú verið tilkynnt að einn besti leikstjórnandi NBA-deildarinnar Chris Paul er genginn til liðs við Los Angeles Clippers frá New Orleans Hornets.

Hornets fá bakvörðinn Eric Gordon, framherjann Al-Farouq Aminu og miðherjann Chris Kaman og fyrsta valrétt í skiptum fyrir stjörnuleikmann sinn. Félagið hefur verið í miklum fjárhagsvandræðum og var tekið yfir af NBA-deildinni. Viðskiptin eru að því leyti athyglisverð að Clippers-menn þurftu í raun að semja um þau við yfirmann deildarinnar, David Stern, sem annast hagsmuni liðsins meðan það er í eigu deildarinnar.

Allt stefndi í það á dögunum að Paul gengi til liðs við Clippers en ekkert varð úr. Áður hafði Los Angeles Lakers verið orðað við leikmanninn, sérstaklega eftir að liðið lét Lamar Odom fara frá sér til heimsmeistaranna í Dallas Mavericks. Nú er hins vegar ljóst að Paul leikur með Clippers á tímabilinu sem hefst síðar í þessum mánuði eftir verkbannið ógurlega sem raskaði tímabilinu umtalsvert.

Clippers hefur átt afleitu gengi að fagna undanfarin ár en fróðlegt verður að sjá samvinnu Chris Paul og hins magnaða stjörnuframherja liðsins Blake Griffin sem slegið hefur rækilega í gegn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?