Lewis Hamilton átti sitt versta tímabil í Formúlu 1 í ár. Hann endaði í fimmta sæti og jafnaði sinn slakasta árangur til þessa og í stað þess að heila alla með hæfileikum sínum var hann meira og minna til vandræða í brautinni og fékk dæmd á sig fleiri víti en nokkur annar maður.
Bernie Ecclestone, einvaldur Formúlunnar, segir að vandamál Hamilton megi rekja til þess að hann rak föður sinn sem umboðsmann fyrir tímabilið. Þá ákvörðun segir hann hafa verið stórslys.
„Það skiptir máli hvernig fólk þú hefur í kringum þig því það er fólkið sem hefur áhrif á þig,“ segir Ecclestone í viðtali við breska blaðið The Guardian. „Ég held að Hamilton hafi bara farið að hanga með of mörgu fólki sem gerði honum ekki neitt gott. Það hentaði Lewis ekki að hafa pabba sinn sem umboðsmann en hann var þó alltaf að passa strákinn og það sést núna hversu gott hann hafði af því að hafa pabba sinn sér við hlið,“ segir Ecclestone.
Eftir að Hamilton sagði skilið við föður sinn gekk hann til liðs við umboðsskrifstofuna XIX Entertainment sem er rekin af Simon Fuller, stjörnuumboðsmanni og hugmyndasmiði Idol og So you think you can dance? „Það var hræðileg ákvörðun,“ segir Ecclestone. „Þar hitti Lewis fullt af fólki sem hann hefði annars ekkert hitt, fólk sem hefur slæm áhrif á hann.“
Einn þeirra segir Ecclestone hafa verið rapparinn Ice-T en hann tók upp umdeilT myndband í McLaren-skúrnum fyrir keppnina í Kanada í ár. „Þegar Hamilton sér svona mann fer hann að dýrka hann og fer að reyna herma aðeins eftir honum,“ segir Ecclestone.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
