Heimsmeistarinn í Formúlu 1 annað árið í röð, Sebastian Vettel, fékk sigurlaunin á galakvöldi Formúlunnar sem haldið var í Nýju-Delí á Indlandi um helgina. Sá siður er alltaf á að heimsmeistarinn fái ekki bikarinn í hendurnar fyrr en á þessu kvöldi en þetta er annað árið í röð sem Vettel tekur á móti sigurlaununum. Vettel gjörsamlega drottnaði yfir Formúlunni í ár og átti aldrei nokkur annar möguleika á að ógna honum eða Red Bull sem tók einnig við sigurlaununum sem heimsmeistari bílasmiða.
Jenson Button á McLaren varð í öðru sæti og Mark Webber, liðsfélagi Vettels, varð þriðji en verðlaunin afhenti gamli liðsstjóri Ferrari og núverandi forseti Alþjóðaakstursíþróttasambandsins, Jean Todt.
„Það er frábært að vera hérna á Indlandi á þessu galakvöldi og taka á móti mínum öðrum heimsmeistaratitli,“ sagði Vettel hrærður við afhendinguna. „Ég hef haft bikarinn heima hjá mér allt þetta ár og mig langaði alls ekki að skila honum. Þetta skiptir mig því mjög miklu máli. Ég get ekki lýst því hvernig það er að vinna tvisvar í röð. Liðið var svo einbeitt allt tímabilið og gerði nær engin mistök. Ég vil þakka öllum starfsmönnum Red Bull-liðsins fyrir þeirra framlag.“
Vettel, sem er aðeins 24 ára, varð í fyrra sá yngsti til þess að verða heimsmeistari í Formúlu 1 og er núna sá yngsti til að vinna tvisvar í röð. Hann setti einnig met í ár með því að hefja fimmtán af nítján keppnum tímabilsins á ráspól. Red Bull-liðið sem heild átti ótrúlegt ár, vann tólf keppnir, náði átján ráspólum og komst samanlagt á pall 27 sinnum. Einstakur árangur. „Það er hreint ótrúlegt hvað við gerðum í ár,“ sagði liðstjóri Red Bull, Christian Horner.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
