Gamlir erkifjendur sem báru ómælda virðingu fyrir hvor öðrum þó. Joe Frazier og Muhammad Ali. Mynd: Reuters
Einn farsælasti og besti hnefaleikakappi sögunnar Joe Frazier lést í gær 67 ára að aldri. Frazier var þekktur sem einn allra harðasti nagli sem stigið hefur fæti inn í hringinn. Hann er þó hvað þekktastur fyrir bardaga sína, innan jafnt sem utan hringsins, við Muhammad Ali.
Þeir börðust sinn frægasta og hrottafengnasta bardaga þann 1. október 1975 á Filippseyjum sem fékk nafnið The Thrilla in Manila. Sá bardagi er af ótal sérfræðingum talinn sá allra besti í hnefaleikasögunni.
Háður við ómannúðlegar aðstæður í loftleysi og rúmlega 40 stiga hita í Manila lögðu bæði Ali og Frazier bókstaflega líf sín að veði í þessum þriðja og síðasta bardaga þeirra um heiðurinn og titilinn.
Svo fór að þjálfari Fraziers stöðvaði bardagann áður en 15. lotan hófst. Þrátt fyrir að vera orðinn úrvinda, nær blindur og barinn vildi Frazier þó halda áfram. Ali lýsti því síðar að hann hafi aldrei verið jafn nærri því að deyja og í þessum bardaga og lýsti því yfir strax eftir bardaganna í viðtali með þeim fáu orðum sem hann kom upp: „Hann er besti boxari í sögunni... á eftir mér.“
Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta frá ferli Frazier, og Thrilla in Manila-bardagann í heild sinni:
Brot af því besta frá Frazier
Hér er fjallað um erkifjendurna Frazier og Ali
Og fyrir alla áhugamenn um hnefaleika: Thrilla in Manila í heild sinni:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
